Césarinn er franska útgáfan af Óskarsverðlaununum. Í gærkvöldi fór hann fram í 37. skipti í Châtelet-leikhúsinu í París.
Síðasta ár var metár fyrir franskar kvikmyndir. Aldrei hafa fleiri miðar verið seldir í kvikmyndahúsum. Það var því mikið um dýrðir á afhendingunni í gær.
Sigurvegari kvöldsins var hiklaust The Artist. Svo fengu þessar myndir líka fjölmargar tilnefningar: 'Polisse', 'Les Intouchables', 'L´exercice de l´État', 'L´Apollonide, souvenirs de la maison close'.
Kate Winslet fékk heiðursverðlaun og við afhendingu hélt leikstjórinn Michel Gondry ræðu í ljóðaformi þar sem hann skiptist á frönsku og ensku. Hún var nokkuð góð, sérstaklega 'car Kate wins late' parturinn.
Laurent Lafitte átti góðan sprett áður en hann veitti Césarinn fyrir bestu erlendu myndina. Hann byrjaði á því að ávarpa Kate Winslet: Hello Kate, my name is Laurence the Fitte. I´m a french actor. Maybe you saw me in 'The Little Kleenex'". Og svo: "Ég dýrka allar myndirnar þínar, sérstaklega þá nýjustu, Titanic, þrátt fyrir að mér finnist endirinn svolítið sorglegur. Það er svo skrýtið, að þegar amerísk leikkona er góð, þá er hún alltaf ensk."
Svo kynnir hann til sögunnar næsta César. Césarinn fyrir besta Frakkann í amerískri leikkonu. 'Tilnefndir eru: Benjamin Millepied í Nathalie Portman, Olivier Martinez í Halle Berry, Francois Pinault í Sölmu Hayek og Brahim Zaibat í Madonnu.' Ansi gott grín - ég allavega hló dátt :)
Það sem er líka áhugavert á César verðlaununum er klæðaburðurinn. Í samanburði við Óskarinn og rauða dregla almennt í Bandaríkjunum, er ekki hægt að segja að Frakkar séu mikið glamúr fólk. Franskar konur brjóta oft fína kjóla upp með frekar tætingslegu hári. Þetta er eitt af því sem einkennir franskar konur og stíl þeirra finnst mér.



No comments:
Post a Comment